Leiðbeiningar til talsmanna og kærenda varðandi framlagningu fylgiskjala og viðbótargagna til kærunefndar

Þegar fylgiskjöl og viðbótargögn eru send kærunefnd skal tilgreina neðangreindar upplýsingar um þau skriflega ýmist í greinargerð eða með öðrum hætti samhliða því að gögnin eru lögð fram.

Fram þarf að koma;

  • Málsnúmer kæranda/kærenda hjá kærunefnd útlendingamála, eða fullt nafn og fæðingardagur.
  • hvaða gögn um er að ræða,
  • hvaða þýðingu gögnin hafa fyrir mál kæranda/kærenda
  • hvers vegna gögnin eru lögð fram á þessum tímapunkti
  • ef um afrit er að ræða,
    • hvers vegna ekki eru lögð fram frumrit
    • og hvar frumritin eru
  • sé um gögn er varða auðkenni að ræða,
    • skulu fylgja upplýsingar um það hvernig gagnanna var aflað
    • hvenær þau bárust kæranda/kærendum
    • hvaða gögn lágu til grundvallar útgáfu þeirra séu þau gefin út eftir að kærandi/kærendur kom/u til landsins.

Þessar leiðbeiningar eru settar fram til að flýta meðferð mála fyrir nefndinni og tryggja að mikilvæg gögn eða upplýsingar sem talsmenn eða kærendur telja skipta máli verði skoðuð með fullnægjandi hætti af nefndinni.